Lubbi á afmæli

Í dag 16. nóvember er dagur íslenskrar tungu og einnig var afmælishundur á leikskólanum sem fagnaði afmælisdeginum sínum í dag. En það er hann Lubbi okkar sem hjálpar okkur að læra stafina. Í tilefni af afmælisdeginum hans var gerð kóróna sem sett var á höfuð hans í samverustund barnanna á deildunum. 

Á myndinni má sjá Lubba með kórónuna sína og í nýju fallegu peysunni sinni sem starfsmaður á leikskólanum prjónaði á hann svo honum verði ekki kalt ;)