Viltu vinna með okkur á Leikskólanum Sólvöllum

Um 75%-100% starf er að ræða. Ráðið er í starfið frá 1. janúar 2024

Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendum á aldrinum 1-4 ára. Skólinn starfar eftir viðurkenndum hugmyndum og kenningum í uppeldisfræðum. Leikskólinn vinnur markvisst að uppbyggingu innra starfs, stjórnun og mótun skólanámskrár og í gangi er endurskoðun á skólastefnu sveitarfélagsins með skýrum viðmiðum um gæði skólastarfs. 

Helstu verkefni og ábyrgð við leikskólann Sólvelli: 

  • Þátttaka í þróun leikskólastarfsins í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk.
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara. 
  • Þátttaka í skipulagningu á faglegu starfi og foreldrasamstarfi. 
  • Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum. 

 

Menntunar - og hæfniskröfur: 

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla af uppeldis - og kennslustörfum æskileg 
  • Áhugi á að vinna með börnum 
  • Lipurð og sveiginaleiki í samskiptum 
  • Frumkvæði í starfi 
  • Góð íslenskukunnátta 
  • Hreint sakavottorð 

 

Fáist ekki leikskólakennari eða einstaklingur með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu, kemur til greina að ráða leiðbeinanda. 

Starfssvið: 

  • Starfar skv. lögum og reglum um leikskóla, örðum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu sveitarfélagsins. 
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna samkvæmt stefnu leikskólans og sem birtist í skólanámskrá. 

 

Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2023

Laun eru greidd skv. kjarasamninigi Félags leikskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar veitir Margrét Sif Sævarsdóttir, leikskólastjóri í síma 4386645 á milli kl. 10:00 -14:00 alla virka daga eða á netfangið margretsif@gfb.is 

Umsóknum um starfið skal fylgja greinargott yfirlit yfir menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem umsækjandi telur skipta máli. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. 

Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda. 

Sótt er um starfið með því að senda á netfangið margretsif@gfb.is