Undanfarna daga erum höfum við verið að tengja Franska bæinn Paimpol við starfið hjá okkur og höfum við meðal annars farið í Paimpol garðinn með Blæ auk þess að fræðast um fánanna okkar.
Í dag var svo komið að kveðjustund fyrir sumarfrí en þá fóru krakkarnir með Blæ í rútuna til Hjalta sem keyrði þá á flugvöllinn í Keflavík. Það var mikil spenna að fara með þá í rútuna og voru krakkarnir búnir að klippa út flugmiða fyrir bangsann sinn og stefnan tekin til Paimpol sem er vinabær Grundarfjarðar og þar ætlar hann að eyða sumrinu við að kynnast bænum og franskri menningu.
Við mælum með að kíkja á instagram hjá okkur og sjá skemmtilega myndbandið af þeim kveðja Blæ.
instagram: leikskolinnsolvellir
Hjalti og Lísa eiga okkar bestu þakkir fyrir að taka þátt í þessu verkefni með okkur og skutla þeim til Keflavíkur. Takk og aftur takk, ómetanlegt að fá fyrirtæki/einstaklinga með okkur í lið og gera meira úr upplifunum okkar.


