Drekadeild

Á Drekadeild eru börn fædd árið 2021 og eru 13 talsins, og börn fædd árið 2022 og eru 9 talsins. Fjöldi barna verða því 22. Starfsmenn á deidinni eru: Sigurborg Knarran Deildarstjóri, Anna K, Auður, Marta og Krisbjörg. Hópstjórar hjá 2021, Blómahóp eru Marta og Auður. Hópstjórar hjá 2022 eru Anna K og Kristbjörg.

Mikilvægt er að börn fái jákvæða upplifun af því að vera í leikskóla og finni stuðning og beri traust til starfsfólks. Það er ekki síður mikilvægt að foreldrar fái jákvæða upplifun af leikskólanum og því leggjum við mikla áherslu á að eiga í góðum samskiptum og samvinnu við foreldra. Ekki hika við að hafa samband við starfsfólk á deildinni ef þið hafið einhverjar spurningar eða viljið ræða eitthvað sem tengist barninu eða leikskólanum.

Dagskipulagið hjá okkur verður svona.

Morgunmatur og frjáls leikurinn er til 9:00. Þá er sett á rólegt lag og öll börn hjálpast að að ganga frá, síðan sjá þau á töflunni hvort þau eiga að fara í útiveru eða fara á mottuna í samverustund.

Hópastarf er tími þar sem við skiptum hópnum niður í tvo hópa eða fjóra hópa. Hópstjóri skipuleggur og framkvæmir fjölbreytt viðfangsefni fyrir sinn hóp. Fastir liðir eru lubbastund, skynjun, Blær, föndur og útikennsla.

Á hverjum degi er samverustund þar sem við leggjum áhersla á málörvun með því t.d. að syngja, telja, læra form og liti, dagar og mánuði. Börnin taka þátt eftir þeirra getu og tíminn sem þau sitja í þessum stundum eykst með aldri og getu. Þetta skóla ár erum við að vinna með námsefnið Úti eru ævintýri og tökum við fyrir þemu í henni og er það rauði þráðurinn í samverustundinni. Allar deildir leikskólans vinna með Lubbi finnur málbein þar sem unnið er með íslensku málhljóðin í gegnum sögur, vísur og hreyfingu/tákn. Einnig förum við í leik vikunar og bók vikunar eru lesin í seinni samverustundinni.

Útivera og útikennsla er mikilvægur partur af starfinu okkar á Drekdadeild og reynum við að fara í útiveru einu sinni til tvisvar yfir daginn. Einnig förum við í gönguferðir og könnum nærumhverfi okkar. Við förum í útikennslu einu sinni í viku. Í útikennslu notum við nærumhverfið okkar sem kennslustofu þar sem við rannsökum umhverfið, eflum hreyfiþroskann og kynnumst náttúrunni.

Val er eftir hádegi þar sem börn og starfsfólk velja í sameiningu hvað á að vera í boði í vali. Þetta er um það bil 3-4 stöðvar. Í vetur ætlum við að taka upp til reynslu einu sinni í viku kynjaskipt val, þar sem stelpur eru inni saman og úti saman og öfugt með strákana.

Við leggjum upp með að börn læri í gegnum leik og hafa börnin aðgang að fjölbreyttum efnivið eins og bókum, skynjun, kubbum, hlutverkaleikjum, könnunarleik, tónlist, hreyfingu, föndri og liti/málningu. Málörvun er rauður þráður í gegnum starfið á deildinni og reynum við eftir fremsta megni að setja orð á allar athafnir yfir daginn, bæði í leik og daglegri umönnun barnanna.

Yfir veturinn fylgjum við eftir svokallaðri Tímalínu. Í Tímalínunni eru sett upp þema og eru verkefni gerð í samræmi við þemað. Þar eru einnig lög, leikir, orð vikunar, Lubbi finnur málbein og bækur sem við fylgjum eftir í hverri viku. Tímalínan er aðgengileg á heimasíðu okkar Leikskólinn Sólvellir (grundarfjordur.is) (solvellir.grundarfjordur.is)

Þegar börnin eiga afmæli er haldið upp á það á deildinni. Sunginn er afmælissöngur fyrir barnið, fær það kórónu, kveikt er á kertum og barnið býður upp á ávaxtanammi. Einnig fá þau að velja sér disk, glas og hnífabör sem eru með allskonar fígúrunum. Ekki er leyfilegt að koma með neitt að heiman í tilefni dagsins.

Við notum forritið Vala til þess að skrá mætingu, svefn og máltíðir barnanna. Þar eru einnig settar inn myndir af börnunum reglulega. Þar er hægt að senda skilaboð á deildina en ef skilaboðin eru áríðandi og þurfa að komast til skila strax að morgni er betra að hringja (896-6892).

Leikskólinn er vinnustaður barnsins og því viljum við biðja ykkur um að velja fatnað í samræmi við það. Hann þarf að vera þægilegur og gott að hreyfa sig í honum og þola ýmis óhöpp, t.d. málningu og lím. Einnig þarf að vera nóg af aukafötum til staðar ef börnin blotna t.d. í útiveru.

Hlökkum til samstarfsins!

Starfsfólk Drekadeild