Dagur náttúrunnar 2026

Í gær 16. september var dagur náttúrunnar í tilefni þess fengum við Guðríði garðyrkjufræðing til okkar í heimsókn. Hún fræddi börnin á Drekadeild um ýmislegt sem tengdist garðinum eins og t.d. tré, rætur, lauka og hvernig gróðurinn blómstrar þegar fer að hlýna. Börnin settu svo niður lauka á lóðinni með Gurrý sem verður spennandi að fylgjast með koma uppúr moldinni í vor. 

Í dag var gróðursetningargleði þar sem var opið hús og öllum boðið að koma og gróðursetja með okkur í nýju beðin sem gerð voru í sumar. Góð mæting var og hlökkum við til að sjá hvernig gróðurinn kemur undan vetri í vor! 

Nanna Vilborg verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála hjá Grundarfjarðarbæ sá um skipulagningu dagsins og þökkum við henni kærlega fyrir að skipulegja með okkur þessa góðu daga.