Daganna 28. september til 8. október vorum við með fjölmenningarviku í leikskólanum. Í leikskólanum koma börn og starfsfólk frá sjö mismunandi löndum og fengum við kynningu á þeim öllum. Við skoðuðum hvar löndin eru á heimskorti og kynntumst menningu þeirra, s.s. tónlist og matarmenningu. Krakkarnir voru mjög duglegir og hugrakkir að smakka allskonar mat sem þau höfðu mörg hver ekki bragðað á eða séð áður.
Kærar þakkir til þeirra sem aðstoðuðu okkur með vikuna, sendu okkur fróðleik, komu sjálf með fróðleik, tónlist, mat eða annað. Án ykkar hefði vikan ekki tekist jafnvel.