Í vetur hefur Elísabet aðstoðarleikskólastjóri verið að þróa jóga á leikskólanum. Í upphafi var aðeins Drekadeild í jóga og svo hafa aðrir árgangar bæst við eftir því sem líða fór á skólaárið auk þess að einn föstudag í mánuði sameinast allar deildir og gera jóga saman. Í upphafi fengu yngstu börnin stuttlega kynningu á jóga þar sem í jóga þurfa þau að tileinka sér þá færni að fara eftir fyrirmælum og börnin hafa misjafna hæfni og getu til þess á leikskóaaldri.
Jógatímarnir eru alltaf í sömu lengd á við aldur, þó svo að hægt sé að lengja þá þegar hæfnin eykst. Við byrjuðum stutt í upphafi en í dag er jóga á Uglu- og Drekadeild (3-5 ára) um 30-40 mínútur þar sem börnin hafa náð það góðri færni. Hugleiðslan/slökunin er einnig í takt við aldur þ.e.a.s 2ja ára börn eiga að vera í 2 mín í hugleiðslu til að byrja með og lengja svo tímann þegar aukin færni næst. Elstu tvær deildarnar eru hins vegar komnar upp í 10-12 mínútna hugleiðslu þar sem þau hafa náð þeirri færni.
Markmiðið í upphafi var að ná að koma þessu markvisst inn í starfið og koma einum jógatíma á viku fyrir hverja deild/hvern hóp. Þar sem það hefur náðst höfum við breytt markmiðinu yfir í það að ná tveimur tímum af jóga í hverri viku fyrir hvern hóp. Auk þess að koma jóga markvisst inn hjá Músadeild. Því við teljum, að því yngri sem þau byrja því betri grunn byggjum við á.



