Afmælisbarn dagsins

Á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember fagnar okkar allra besti Lubbi afmæli sínu. Hann hefur verið hluti af starfinu hjá okkur lengi þar sem hann segir okkur frá íslensku málhljóðunum. 

Á músadeild fagnar hann 2 ára afmæli sínu, á ugludeild fagnar hann 3 ára afmæli sínu og á drekadeild fagnar hann 4 ára afmæli. 

Í tilefni dagsins bökuðu börnin í dag Lubbabrauð með hádegismatnum, Lubbi fékk kórónu og haldið var uppá daginn.