Í tilefni tónlistarhátíðarinnar Krakka-Rökkur-Rokk héldu krakkarnir á Sólvöllum rokktónleika í samkomuhúsinu fyrir fullum sal.
Upphaflega stóð til að hafa útitónleika og syngja eitt lag en hugmyndin stækkaði heldur betur og sýndu krakkarnir mikið hugrekki með því að koma fram og syngja og dansa fyrir framan fullt hús. Krakkarnir sungu lögin: Burtu með fordóma með Pollapönk, Traustur vinur með á Móti sól og We will Rock you með Queen.