Kvenfélagið Gleym mér ei hefur nú keypt tjald til útikennslu fyrir börnin á Sólvöllum. Fyrir hönd barna og starfsfólks leikskólans Sólvalla þökkum kvenfélaginu kærlega fyrir stuðninginn nú sem og undanfarin ár. En félagið hefur m.a. styrkt okkur með kaupum á húsgögnum, leikföngum, peningagjöf fyrir bambahúsinu og með tjaldinu.
Helena María frá kvenfélaginu kom í dag og afhenti börnunum tjaldið.
Með stuðningi félagsins getum við skapað fleiri tækifæri til leiks, útiveru og fjölbreyttari námsumhverfi í takt við stefnu og áherslur skólans.
Það er dýrmætt fyrir leikskólasamfélag að finna slíkan hlýhug og gjafmildi sem styðja við og styrkja starfið okkar.
Gjöf félagsins sýnir umhyggju og hlýhug fyrir börnunum og áhuga á því að styðja við gott skólastarf.