Dagur leikskólans

Þann merkisdag, 6.febrúar, er dagur leikskólans! Markmiðið með honum er að auka jákvæða umræðu um leikskólastarf og einblína á það faglega og metnaðarfulla starf sem unnið er í leikskólum landsins.

Að sjálfsögðu var dagurinn því haldin hátíðlegur í Leikskólanum Sólvöllum. Undirbúningur hófst í byrjun vikunnar þar sem börnin fengu að segja hvað þau vildu gera. Börnin völdu að baka köku sem yrði svo borðuð í eftirrétt í hádeginu. Þau fengu að baka hana deginum áður með aðstoð kennaranna sinna og skreyttu kökuna með bláu og grænu kremi. Einnig var opið hús fyrir foreldra milli 8 til 9 þar sem þau gátu komið í heimsókn og notið þess að borða morgunmat með börnunum sínum.