Heimsókn

Í tilefni af Barnamenningarhátíð Vesturlands sem stendur nú yfir fengum við góða heimsókn í morgun. Steinunn Arinbjarnadóttir leikkona og kenanranemi heimsótti krakkanna og leiddi þau í gegnum ljósmyndaævintýri. 

Krakkarnir notuðu spjaldtölvur undir handleiðslu Steinunnar til að taka ljósmyndir af skemmtilegum mynstrum í nærumhverfinu. Að því loknu skoðuðu krakkarnir myndir og sköpuðu saman ævintýri sem byggði á myndum krakkanna.