Heimsókn í varðskipið Þór

Í dag fórum við um borð í varðskipið Þór í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar. Þar fengum við kynningaferð um allt skipið þar sem við sáum meðal annars matsalinn þeirra, svefniherbergin, fallbyssu, spítalann, gestaherbergið þar sem Guðni forseti hefur fengið að gista og allskonar fatnað sem skipverjar þurfa að klæðast líkt og kafarabúning og slökkviliðsbúning.

Í enda heimsóknarinnar var tekin mynd af okkur með nokkrum skipsverjum og fengum bakpoka frá þeim í gjöf.