Leikhús í tösku "Grýla og jólasveinarnir"

Í dag bauð foreldrafélag leikskólans uppá leiksýningu fyrir okkur og nemendur Eldhamra.

Þórdís Arnljótsdóttir leikari kom og sýndu sýninguna Grýla og jólasveinarnir.  Í sýningunni leiðir gömul kona litla stúlku í leikferð með jólsveinunum þrettán og Grýlu. Nemendur tóku virkan þátt í sýningunni þar sem var sungið, mikið hlegið og allir skemmtu sér mjög vel yfir uppátækjum jólasveinanna. 

Við þökkum stjórn foreldrafélagsins kærlega fyrir þetta frábæra framtak!