Náttfata- og bangsadagur

Í dag er alþjóðlegi bangsadagurinn og af því tilefni héldum við náttfata- og bangsadag í leikskólanum. 🧸

Börnin fóru með bangsana sína í heimsókn á heilsugæsluna, þar sem Dagný og Prianka tóku á móti þeim og hjúkruðu þeim böngsum sem þurftu á því að halda. 🩺

Markmið heimsóknarinnar var m.a. að börnin fengju að kynnast heilbrigðisþjónustunni í gegnum leik og öðluðust aukið öryggi í aðstæðum sem tengjast læknisheimsóknum. Við þökkum starfsfólki heilsugæslunnar kærlega fyrir hlýjar og góðar móttökur! 💛