Starf kennara
Leikskólinn Sólvellir auglýsir eftir kennara til starfa í 75% stöðu með möguleika á hærra starfshlutfalli. Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1-6 ára með um 45 nemendur. Einkunnarorð leikskólans eru virðing, gleði, samvinna og náttúra, endurspeglast þau í öllu starfi leikskólans. Mikil áhersla er lögð á útikennslu, hæglæti og leikinn sem aðalnámsleið barnsins. Leikskólinn er þátttakandi í verkefni Embættis landlæknis um heilsueflandi skóla og Grænfánaverkefni Landverndar.
Kennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Grundarfjarðarbæjar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum sem gilda um leikskóla.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Helstu verkefni og ábyrgð eru m.a.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar gefa Heiðdís Lind Kristinsdóttir leikskólastjóri og/eða Elísabet Kristín Atladóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 438-6645 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið heiddis@gfb.is
Fáist ekki kennari eða einstaklingur með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu, kemur til greina að ráða leiðbeinanda.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2026.
Ráðið er í stöðuna frá 11. ágúst 2026 nk.