Vinabæjarheimsókn frá Paimpol

Á föstudaginn fengum við góða gesti til okkar á Sólvellir alla leið frá vinabæ okkar Paimpol í Frakklandi. Blær okkar fór í heimsókn til Frakklands í sumar og höfðu þær séð það hjá okkur á Instagram og þær vildu fylgja því eftir og hitta krakkanna í leikskólanum.

Elísabet Kristín aðstoðarleikskólastjóri hélt stutta kynningu á verkefninu um Blæ og hvernig það kom til að hann fór til Frakklands en það tengist gæðaviðmiði úr Menntastefnunni okkar um að styrkja tengsl við vinabæinn okkar. 

Að því loknu fóru gestirnir og hittu krakkanna, sýndu þeim myndir frá bænum og kort frá börnum í Frakklandi. 

Hugmyndin er að vinna þetta samstarf áfram og skapa tengsl á milli Sólvalla og skóla í Frakklandi, t.d. með pennavinaverkefni.